Explorer er 34 lítra rúmgóður bakpoki og stækkanlegur í 45,6 lítra fyrir þá kröfuhörðustu

24.900 kr.

Glæsilegur og vandaður 34 lítra bakpoki með vasa fyrir allt að 17,3″ fartölvu, 11″ spjaldtölvu og USB tengi utan á hlið töskunnar með tengi inni í tösku fyrir hleðslubanka svo auðvelt sé að hlaða tækin á ferðinni. Taskan er tvískipt og í öðru hólfinu er einn stór vasi með rennilás og fjórir opnir vasar. Í hinu hólfinu er vasi fyrir ferðatölvu og annar fyrir spjaldtölvu ásamt fjórum opnum vösum. Að framan er einn stór vasi með rennilás og að aftan er einn vasi með rennilás. USB-A tengi á hlið ásamt 1x USB-A tengi inni í töskunni ásamt vasa fyrir hleðslubanka.

Það er hægt að stækka töskuna um 8cm sem eykur plássur verulega eða úr 34 lítrum í 45,6 lítra þegar þess er þörf. Aftan á töskunni er festing fyrir ferðatöskur svo auðvelt sé að ferðast með hana fasta við handfang ferðatöskunnar í ferðalaginu. Neyðarflauta er á smellu og það eru þrjú handföng til að halda á töskunni auk þess sem hægt er að setja hana á bakið. Bakpokinn er með hágæða YKK rennilásum sem eru þeir bestu á markaðinum og endast mun lengur. Virkilega góð taska sem kemur að góðum notum til daglegra nota eða í styttri ferðir.

SJá myndband af vöru neðar á þessari síðu.

– Litur: Grár og svartur
– Stærð: 46x31x24 cm (34,2 lítrar)
– Stækkuð stærð: 46x31x32 cm (45,6 lítra)
– Þyngd: 1,65 kg
– Efni: Oxford sem hrindir frá vatni
– Hágæða YKK rennilásar

Vörunúmer: MR-9907 Vöruflokkur: Brand: